Til hvers eru bílastæðin í miðborginni?

Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir eru að fara að giftast. Ég óska þeim til hamingju með það.

Brúðkaupsveislan verður í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi, og það er allt gott og blessað, svo lengi sem það gengur ekki út yfir venjulegan tilgang safnsins.

En það sem truflar mig mjög mikið er að fjölmörg bílastæði, ein 20-30 stykki hafa verið lögð undir tjald sem reist hefur verið í framhaldi af Hafnarhúsinu meðfram Geirsgötu. Ég geri ráð fyrir því að hjónaleysin hafi greitt a.m.k. það sem svarar til bílastæðagjaldanna sem Bílastæðasjóður Reykjavíkur verður af vegna þessa. Jafnframt verða Faxaflóahafnir, og ráðuneyti þau sem hafa aðsetur í Hafnarhúsinu af nokkrum bílastæðum á meðan þessu stendur.


En það vekur upp spurninguna: Til hvers eru bílastæðin? Á hver sem er að geta tekið þau frá fyrir sjálfan sig? Þetta væri kannski annað ef þetta væri atburður sem almenningur hefði aðgang að, en þar sem mér hefur (enn) ekki verið boðið í brúðkaupið tel ég þetta ekki slíkan atburð. Bílastæðin eru þjónusta sem borgin veitir gestum miðborgarinnar gegn hóflegu gjaldi til þess að sem flestir geti notið þeirrar þjónustu sem hún hefur upp á að bjóða.

Hliðstætt mál sem kom upp í Danmörku var þegar evrópska MTV tónlistarverðlaunaafhendingin var haldin í Kaupmannahöfn. Þá tók sjónvarpsstöðin sjálft Ráðhústorgið frá og ætlaði einungis að veita sérstaklega boðnum gestum aðgang (t.d. þeim sem unnu ýmis getraunir í þáttum stöðvarinnar). Borgin sætti sig ekki á þessi skilyrði og skipaði stöðinni að almenningur fengi aðgang að veislunni á Ráðhústorginu.

Þetta er hliðstætt að því leyti að bílastæði borgarinnar eru frátekin fyrir þá sem vilja nota þessa þjónustu hverju sinni (og bilastæðin eru talsvert færri en eftirspurnin segir til um), og ættu ekki að vera eitthvað sem hver sem er getur leigt fyrir einkasamkomu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband